Vilja búa til nýtt og kröftugt fyrirtæki með sameiningu sjávarútvegsfyrirtækja
Nýr sjávarútvegsrisi, með rúmlega 44.000 tonn af aflaheimildum og um það bil 16 milljarða króna veltu og vel yfir 600 manns í vinnu yrði til með sameiningu Grindvísku félaganna Þorbjörns og Vísis. Viðræður um að stofna nýtt fyrirtæki og byggja upp rekstur nýs sjávarútvegsfyrirtækis í Grindavík standa nú yfir.
Áætlað er að samruni af þessu tagi taki allt að þremur árum og er ekki reiknað með uppsögnum í tengslum við hann, þó má að sjálfsögðu gera ráð fyrir breytingum á útgerðarháttum og mögulega einhverjum tilfærslum á störfum á þeim tíma. Núverandi eigendur félaganna verða áfram allir hluthafar í nýju félagi, en markmið þeirra sé að búa til nýtt og kröftugt fyrirtæki sem jafnframt getur fylgt eftir tækninýjungum og svarað aukinni kröfu markaðanna. Einnig mun hið nýja fyrirtæki tryggja bolfiskvinnslu og styrkja samfélagið í Grindavík enn frekar.
Gangi viðræður um stofnun nýs félags samkvæmt áætlun, má búast við að það taki til starfa um áramót, en þangað til verður rekstur fyrirtækjanna tveggja óbreyttur.