Nýjast á Local Suðurnes

Ragnheiður Sara heldur efsta sætinu eftir dag tvö

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir heldur enn forystu í undankeppni fyrir Heimsleikana í crossfit sem fram fer í Madríd á Spáni um helgina. Keppt var í þremur greinum í dag og lenti Ragnheiður Sara í öðru sæti í fyrstu grein, fimmta sæti í þeirri næstu og gerði sér svo litið fyrir og sigraði þá þriðju á nýju meti.

Ragnheiður Sara hefur 470 stig fyrir lokadaginn á morgun, en þá verður keppt í tveimur greinum. Íslensku keppendurnir raða sér í efstu sætin, en Annie Thorisdóttir er í öðru sæti með 450 stig og Þuríður Erla Helgadóttir í því fjórða með 391 stig.

Áhugasamir geta prófað þrautirnar sem stúlkurnar keppa í, en nákvæma lýsingu á greinunum er að finna hér. Svo er um að gera að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á morgun, en Ragnheiður Sara hefur keppni klukkan 11:00-11:20 og lokagreinin fer svo fram klukkan 13:35-13:45.