Nýjast á Local Suðurnes

Amabadama startar Trúnó – Aðeins 100 miðar í boði

Ný tónleikaröð Hljómahallarinnar fer fram í vetur og ber heitið TRÚNÓ. Tónleikarnir fara allir fram í Bergi sem er minnsti salur Hljómahallar með aðeins 100 sætum. Hljómsveitirnar og listamennirnir sem koma fram í tónleikaröðinni eru yfirleitt vanari að spila fyrir töluvert stærri hóp áhorfenda.

Fyrsta hljómsveitin sem kemur fram á tónleikaröðinni TRÚNÓ er  reggíhljómsveitin Amabadama, en tónleikar sveitarinnar fara fram þann 7. september næstkomandi.

Reggíhljómsveitina Amabadama skipa þau Gnúsi Yones, Salka Sól og Steinunn Jóns. Hljómsveitin hefur verið á flugi síðan lagið Hossa hossa kom út árið 2014. Platan sem fylgdi í kjölfarið sló í gegn, og hafa mörg lög þeirra setið á vinsældarlistum landsins síðustu misseri. Árið 2015 fékk hljómsveitin Íslensku tónlistarverðlaunin sem nýliðar ársins, en hún þykir sérstaklega skemmtileg á tónleikum þar sem gleði, kraftur og húmor ráða ríkjum.

Opnað verður fyrir miðasölu á tónleika hljómsveitarinnar klukkan 10, föstudaginn 18. ágúst. Aðeins 100 miðar eru í boði og er aðeins um eina tónleika að ræða