Verð lækkaði í öllum verslunum Samkaupa

Verðkannanir á vörukörfu, sem unnar voru af verðlagseftirliti ASÍ, sýna að verð hefur lækkað á þeim vörum sem kannanirnar náðu til í öllum verslunum Samkaupa, Nettó, Krambúðinni, Kjörbúðinni og Iceland.
Kannanirnar voru gerðar dagana 11. -18. maí 2022 og 8. – 15. september 2022. Mest lækkaði verð í Krambúðinni, um 3,9%, 2,6% í Kjörbúðinni, 2,2% í Nettó og 1,5% í Iceland. Verslanirnar eru allar hluti af verslanakeðju Samkaupa, sem áður segir.
Verð á mjólkurvöru, ostum og eggjum lækkaði í öllum fjórum verslununum sem og verð á ávöxtum og grænmeti. Verð á drykkjarvöru í þremur verslunum verslunarkeðjunnar en stóð í stað í Nettó. Verð á hreinlætisvöru lækkaði einnig í öllum þessum verslunum nema Iceland.
Um könnunina
Verðkannanir á vörukörfunni voru gerðar 11. -18. maí 2022 og 8. – 15. september 2022. Verðlagseftirlit ASÍ mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, og safa. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.
Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaup, Kjörbúðinni, Iceland, Heimkaup og Krambúðinni. Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.