Reykjanesbær grípur til enn frekari ráðstafana
Reykjanesbær hefur gripið til ráðstafana til að bregðast við COVID-19 faraldrinum. Til að minnka útbreiðslu á veirunni hefur verið ákveðið að loka bókasafni Reykjanesbæjar í óákveðinn tíma frá og með mánudeginum 16 mars .
Kaffihúsinu í ráðhúsinu verður lokað og lágmarks þjónusta verður veitt í þjónustuverinu. Íbúar og aðrir viðskiptavinir sem eiga erindi í þjónustuver Reykjanesbæjar eru hvattir til að senda tölvupóst á reykjanesbaer@reykjanesbaer.is, spjalla við starfsfólk í netspjalli eða hringja í síma 421-6700.
Skrifstofa velferðarsviðs hefur ákveðið að þjónusta flest erindi í gegnum síma eða tölvu, þeir einstaklingar sem eiga tíma hjá félagsráðgjafa halda þeim tímum og mun ráðgjafi hringja í þá. Þeir sem þurfa að ná sambandi við starfsmenn velferðarsviðs geta hringt í þjónustuver Ráðhússins eða sent tölvupóst. Vakin er athygli á að netfangaskrá starfsmanna er á heimasíðu Reykjanesbæjar.
Hægt er að sækja um alla þjónustu rafrænt í gegnum þjónustugáttina og rafræna miðla á Mitt Reykjanes inn á heimasíðu bæjarins. Tilkynningar til barnaverndar eiga að berast í síma 112.
Duus hús og Hljómahöllin verða áfram með sínar vanalegu opnanir en lágmarka fjölda gesta hverju sinni.