Rekstur bílaleiga þyngist: “Sé ekki annað en að einhverjar leigur týni tölunni”
Styrking krónunnar mun þyngja rekstur bílaleiga næstu misserin, en óbreyttar verðskrár og lækkun á markaðsverði bíla við endursölu munu að öllum líkindum rýra efnahag bílaleiganna.
Garðar K. Vilhjálmsson, eigandi Bílaleigunnar Geysis, segir að einhverjar bílaleigur muni týna tölunni þegar kemur fram á vetur.
„Það hefur verið mikil offjárfesting í þessum geira. Menn munu súpa seyðið af því í haust. Það er mikið offramboð af bílaleigubílum,“ sagði Garðar í samtali við Morgunblaðið í dag. „Menn eru að keyra niður verð. Ég sé ekki annað en að einhverjar leigur týni tölunni þegar kemur fram á vetur. Ég tala ekki um ef gengið þróast áfram eins og það hefur gert.“