Neytendastofa sektar bílastæðaþjónustu á Keflavíkurflugvelli

Neytendastofa hefur lagt 250.000 kr. stjórnvaldssekt á Base Capital ehf. vegna Base Parking, fyrir að brjóta gegn fyrri ákvörðun stofnunarinnar þar sem stofnunin bannaði fyrirtækinu meðal annars að birta fullyrðingar um ódýrustu bílastæðin.
Neytendastofa taldi þörf á að leggja stjórnvaldssekt á Base Capital ehf. þar sem sýnt var fram á að félagið hafi brotið gegn fyrri ákvörðun stofnunarinnar, sem snéri að auglýsingum Base Parking um ódýrasta daggjaldið og 58% ódýrara daggjald.
Þá komst stofnunin einnig að þeirri niðurstöðu að fullyrðing fyrirtækisins um fría „valet“-þjónustu í verðskrá á vefsíðunni baseparking.is, væri villandi og bryti gegn lögum um viðskiptahætti og markaðssetningu og reglugerð um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir.