Nýjast á Local Suðurnes

Hnuplari hlaupinn uppi

Einstaklingur sem hugðist hnupla ilmvatnsglasi úr verslun í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær tók sprettinn út úr versluninni þegar lögreglumaður mætti á staðinn. Sá síðarnefndi hljóp hnuplarann uppi og var hann látinn borga fyrir ilmvatnið.

Fyrr í vikunni hafði annar fingralangur einstaklingur reynt að stela fótakremi með því að taka það úr kassanum og skilja umbúðirnar eftir. Viðkomandi var einnig látinn borga kremið sem kostaði nær sex þúsund krónur