Nýjast á Local Suðurnes

Mikil hætta á að hraun renni yfir hitaveituæð

Mikil hætta er á að hraun renni yfir hitaveituæð HS veitna í Svartsengi. Það þýðir að ekkert heitt vatn yrði á Suðurnesjum og nágrannasveitafélögum.

Þetta kemur fram í máli forstjóra HS Veitna við Vísi. Svartasta sviðsmyndin gæti verið að raungerast, segir forstjórinn. Íbúar Suðurnesja eru beðnir um að varðveita hita á húsum og loka strax gluggum. Heitavatnsleysið myndi þó sennilega ekki standa lengur en í einn til tvo sólarhringa.