Nýjast á Local Suðurnes

Halda tónleika á þaki Hljómahallar

Þann 11. júní næstkomandi eru 30 ár frá því að Reykjanesbær varð til við sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna og af því tilefni verður nlásið til veislu í sveitarfélaginu, sem hefst á afmælisdaginn sjálfan þriðjudaginn 11. júní.

Afmælistónleikar verða haldnir á þaki Hljómahallar. Þar mun hljómsveitin Albatross koma fram ásamt Röggu Gísla, Friðriki Dór, Jóhönnu Guðrúnu og Sverri Bergmann. Tónleikarnir hefjast kl. 19:00. Á svæðinu verða matarvagnar. Líf og fjör fyrir alla fjölskylduna – vertu með í veislunni!

Gestir eru eindregið hvattir til að nota almenningssamgöngur, ganga eða hjóla á viðburðinn. Til upplýsinga verður bílaplan Hljómahallar lokað að þessu tilefni en hægt er að finna bílastæði t.d. við Hólagötu, Hjallaveg, bílaplaninu við Krossmóa, við Njarðvíkurkirkju og við íþróttahúsið í Njarðvík.