Nýjast á Local Suðurnes

Færeyingar duglegir við að styrkja Grindvíkinga

Færeyski Rauði krossinn hefur safnað sem nemur 5 milljónum íslenskra króna í neyðarsöfnun fyrir íbúa Grindavíkur. Landsstjórn Færeyja hefur þá ákveðið að leggja sömu upphæð til söfnunarinnar, í gegnum neyðarsjóð landsins.

Færeyingar láta ekki þar við sitja, heldur hafa Lionsklúbbarnir LC Tórshavn, LC Suðuroy, LC Vágar, LC Eysturoy/Klaksvík, LC Tindur og LC Liljan, lagt til 100.000 Danskar krónur, eða tvær milljónir króna til viðbótar.

Þetta kemur fram á færeyska vefmiðlinum jn.fo.