Björgunarsveitin Suðurnes tekur þátt í leit að ferðamanni sem féll í á við Sveinsgil

Um 180 manns hafa tekið þátt í leit að erlendum ferðamanni sem féll ofan í á við Sveinsgil norðan Torfajökuls í gærkvöldi. Björgunarsveitin Suðurnes er ein þeirra sveita sem tekur þátt í leitinni að ferðamanninum.
Í nótt lagði af stað hópur frá Björgunarsveitinni Suðurnes í Sveinsgil þar sem leit stendur yfir af erlendum ferðamanni sem féll þar í á. Aðstæður eru mjög erfiðar og krefjandi, búið að rigna mikið og þurfa björgunarmenn að moka í gegnum þykka ísbreiðu til að komast að ánni og nota til þess skóflur og keðjusagir. Segir á heimasíðu sveitarinnar.
Í fréttum mbl.is kemur fram að um 60 manns vinni hverju sinni að því að moka þéttum snjó ofan af og upp úr ánni, en unnið var í alla nótt við að moka í gegnum ísbreiðuna til að komast niður að ánni sem maðurinn féll í. Notast var við keðjusagir til að losa um ísinn og allan þann mannskap sem gat mokað og komið klaka og snjó frá slysstað.