Nýjast á Local Suðurnes

HS Orka flytur höfuðstöðvar sínar í Svartsengi

HS Orka mun flytja höfuðstöðvar sínar frá Reykjanesbæ í Svartsengi í Grindavík í lok árs, þetta kemur fram á vef Grindavik.net.

Fyrirtækið hefur rekið orkuver í Svartsengi í rúm 40 ár en höfuðstöðvarnar hafa hingað til verið á Brekkustíg í Reykjanesbæ. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 60 manns og hefur starfstöðvum verið skipt á milli Svartsengis og Brekkustígs auk þess sem nokkrir starfsmenn starfa við orkuverið á Reykjanesi.

Með flutningi höfuðstöðvanna munu allir starfsmenn fyrirtækisins verða staðsettir á sama stað.

Að sögn Ásgeirs Margeirssonar forstjóra HS Orku hefur verið stefnt að því að sameina starfsemi fyrirtækisins á einum stað í nokkurn tíma. Í dag deilir fyrirtækið húsnæði með HS Veitum en vegna fjölgunar starfsmanna hjá báðum fyrirtækjum er núverandi húsnæði orðið of lítið. Það hafi því legið beinast við að HS Orka nýtti tækifærið til að flytja starfsemi sína.

Í Svartsengi er til staðar rúmgott húsnæði, Eldborg, sem hægt var að breyta í skrifstofuhúsnæði sem rúmar starfsemi fyrirtækisins. Stefnt er að því að þeir starfsmenn sem í dag eru með starfstöð í Reykjanesbæ muni flytja í lok nóvember. Segir í fyrirspurn www.grindavik.net um málið.