Nýjast á Local Suðurnes

Munu færa bátakerrur á opnum svæðum á kostnað eigenda

Nokkuð hefur borið á því að bátakerrur, með og án báta, séu staðsettar á opnum svæðum hafnarinnar án heimildar. Hjá Reykjaneshöfn er skilgreint uppsátursvæði í Grófinni sem ætlað er undir slík farartæki.

Reykjaneshöfn hefur ákveðið að bregðast við þessum aðstæðum og mun á næstu dögum færa á kostnað eigenda allar bátakerrur á opnum svæðum, með eða án báta, inn á viðkomandi uppsáturssvæði.

Í tilkynningu frá reykjaneshöfn kemur fram að eigendur viðkomandi bátakerra eru beðnir að hafa samband við hafnarverði Reykjaneshafnar í síma 420-3224 til að gera grein fyrir sínum kerrum, en öllum þeim bátakerrum sem eru án skilgreindra eigenda á hafnarsvæðinu þann 30. september n.k. verður fyrirkomið.