Auka heildarframleiðslu á bleikju um 25% á ári með stækkun í Grindavík
![stað bleikja](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/10/stað-bleikja.jpg?resize=620%2C264)
Eldisfyrirtækið Íslandsbleikja opnaði nýja stækkun við eldisstöð sína að Stað í Grindavík um síðustu helgi. Um er að ræða átta ný eldisker sem eru sextán þúsund rúmmetrar að stærð og bætast við núverandi 28 þúsund rúmmetra sem þegar eru á svæðinu.
Íslandsbleikja er stærsti bleikju framleiðandi í heimi og framleiðir tæp 3000 tonn af bleikju árlega. Með þessari nýju eldis einingu er áætlað að auka heildarframleiðslu á bleikju um 25% á ári þegar öll kerin verða komin í fulla framleiðslu. Hjá félaginu starfa um sjötíu manns í fimm eldisstöðvum á Suðurlandi, Reykjanesi og Öxnafirði en í Grindavík er fer einnig fram slátrun og fullvinnsla fyrir afurðir félagsins.