Nýjast á Local Suðurnes

Keflvíkingar unnu verðskuldaðan sigur í Ljónagryfjunni

Earl Brown Jr. var rekinn frá Keflavík þrátt fyrir að hann hafi skorað 25 stig að meðaltali í leik og tekið 12 fráköst

Stórleikur kvöldsins í Dominos-deilda karla í körfuknattleik fór fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld þar sem heimamenn tóku á möti grönnum sínum úr Keflavík.

Njarðvíkingar hófu leikinn af krafti og voru sterkari aðilinn fyrstu mínúturnar en Keflvíkingar náðu þriggja stiga forskoti undir lok 1. leikhluta og létu það ekki f hendi eftir það.

Keflvíkingar unnu að lokum sannfærandi 10 stiga sigur, 84-94. Keflvíkingar halda því sigurgöngu sinni áfram í Dominos-deildinni og hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa eins og Grindvíkingar en þetta var fyrsti tapleikur Njarðvíkinga.