Keflvíkingar nota tæknina – Kefkarfa á Snapchat

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur er aldeilis gengin inn í nútímann en deildin hefur verið að prufa sig áfram á Snapchat síðustu misseri undir heitinu KefKarfa.
Í vetur mun snappið svo ganga manna á milli og stuðningsmenn munu hafa tækifæri á að fylgjast með lífi leikmanna á leikdögum og fleira sniðugt sem kann að koma upp.
Við hvetjum alla til að fylgja KefKarfa á snapchat en við stefnum á að hafa vikuna viðburðaríka á snappinu, segir á heimasíðu Keflvíkinga.