Grindavík áfram í bikarnum
Grindvíkingar eru komnir áfram í undanúrslit Geysisbikars karla í körfubolta eftir 19 stiga sigur á Sindra í Hornafirði í kvöld, 93-74.
Grindvíkingar hafa ekki náð sér á strik í deildinni og sitja þar í níunda sæti. Dregið verður í undanúrslit í hádeginu á morgun.