Góður árangur Suðurnesjamanna í akstursíþróttum um helgina – Myndir!
![rally4](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/05/rally4.jpg?resize=620%2C264)
Suðurnesjamenn stóðu fyrir sínu í akstursíþróttum um helgina, en þá fóru fram keppnir í rallýcross og 1/8 mílu á aksursíróttasvæðinu við Hafnarfjörð. Það má sega að keppendur frá Suðurnesjum hafi einokað verðlaunapallana að þessu sinni en Suðurnesjamenn komust á pall í öllum flokkum nema einum.
Jón Hrólfsson sigraði í opnum flokki og Ragnar B. Gröndal í 2000 flokki í rallycrossi. Brynhildur og Eiríkur Kristjánsbörn lentu í þriðja sæti, Brynhildur í unglingaflokki en Eiríkur í 2000 flokki. Þá lenti Ágúst Aðalbjörnsson í þriðja sæti í opnum flokki.
Á kvartmílubrautinni við Hafnarfjörð var keppt í 1/8 mílu og voru tveir Suðurnesjamenn í verðlaunasætum, Birgir Kristinsson vann Mótorhjólaflokkinn og Ingi Björn Sigurðsson var í 2 sæti í Íslandsmóti Götuspyrnu Mótorhjóla.