Nýjast á Local Suðurnes

Fáir Suðurnesjamenn í æfingahóp karlalandsliðsins í körfuknattleik

Körfuknattleikssamband Íslands kynnti æfingahóp A-landsliðs karla sem æfa mun fyrir Eurobasket 2015 sem haldið verður í september næstkomandi, þetta kemur fram á Karfan.is.

Einnig var kynnt dagskráin hjá liðinu næstu daga en það mun spila tvo æfingaleiki við hollenska landsliðið í byrjun ágúst og taka þátt í æfingamótum í Eistlandi og Póllandi í seinni hluta mánaðarins.  Dagskrána og landsliðshópinn má finna hér fyrir neðan.

Athygli vekur að Elvar Már Friðriksson er skráður í hópinn en hann hefur lýst því yfir að hann myndi ekki gefa kost á sér vegna anna í skóla, en hann skipti um skóla í Bandaríkjunum nýlega.

Landsliðshópurinn:

  • Axel Kárason – Svendborg Rabbits, Danmörk
  • Brynjar Þór Björnsson – KR
  • Darri Hilmarsson – KR
  • Elvar Már Friðriksson – Barry University USA / Njarðvík
  • Emil Barja – Haukar
  • Finnur Atli Magnússon – KR
  • Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð
  • Helgi Már Magnússon – KR · Framherji
  • Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð
  • Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher BC, Þýskaland
  • Jakob Örn Sigurðarson – Boras Basket, Svíþjóð
  • Jón Arnór Stefánsson – Unicaja Malaga, Spánn
  • Kristófer Acox – Furman University USA / KR
  • Logi Gunnarsson – Njarðvík
  • Martin Hermannsson – LIU University USA / KR
  • Ólafur Ólafsson – Grindavík
  • Pavel Ermolinskij – KR
  • Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons
  • Sigurður Ágúst Þorvaldsson – Snæfell
  • Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Solna Vikings, Svíþjóð
  • Ægir Þór Steinarsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð

Dagskrá landsliðsins:

Ágúst:

7. ágúst föstudagur Ísland – Holland í Þorlákshöfn kl. 19.15

9. ágúst sunnudagur Ísland – Holland í Laugardalshöll kl. 16.00

Æfingamót í Eistlandi 20.-22. ágúst · Eistland, Ísrael, Holland

Æfingamót í Póllandi 28.-31. ágúst · Pólland, Belgía, Líbanon

September:

EuroBasket 2015 · 5.-10. sept. (riðlakeppni) Þýskaland, Ítalía, Serbía, Spánn, Tyrkland