Suðurnesjabarn kom í heiminn á miðjum gatnamótum
Sjúkraflutningamenn Brunavarna Suðurnesja voru kallaðir út í gærmorgun vegna flutnings á fæðingadeild í höfuðborginni. Barnið var þó heldur betur að flýta sér í heiminn og fæddist í sjúkrabílnum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Bústaðarvegs.
Móður og barni heilsast vel að því er segir í færslu Brunavarna Suðurnesja á Facebook.