Nýjast á Local Suðurnes

Sigurður Ragnar verður yfirmaður knattspyrnumála

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur ráðið Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem yfirmann knattspyrmála hjá félaginu. Hann mun áfram starfa sem einn af tveimur aðalþjálfurum meistaraflokks karla ásamt Eysteini Húna Haukssyni, en liðið tryggði sér sæti í Pepsí-Max deildinni á nýafstöðnu tímabili.

Starf yfirmanns knattspyrnumála er viðbót við umgjörð Keflavíkur sem miðar að því að byggja upp sterkari leikmenn og öflugri einstaklinga og er markmiðið að með ráðningunni verði allt faglegt starf innan félagsins samþætt frá yngsta aldursflokki að meistaraflokki, segir í tilkynningu.

Sigurður mun starfa náið með framkvæmdastjóra félagsins, þjálfarateymi yngri flokkanna, barna- og unglingaráði auk kvennaráðs og stjórnar.

Sigurður Garðarsson formaður stjórnar knattspyrnudeildar Keflavíkur er ánægður með þróun mála.

“Það er mikill fengur fyrir Keflavík að fá Sigga Ragga inní fullt starf hjá félaginu. Hann hefur mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari bæði heima og erlendis auk þess sem hann starfaði í 12 ár sem fræðslustjóri KSÍ.

Keflavík hefur sýnt það síðustu ár að með því að horfa inná við og vinna í því að byggja upp starfið markvisst má ná meiri árangri. Í bæði karla- og kvennaliðunum okkar er stór hluti af uppöldum ungum leikmönnum sem hafa þroskast mikið á síðustu árum og munu bæði spila á meðal þeirra bestu á nýju ári.

Með komu Sigga Ragga viljum við bæta enn frekar í þessa stefnu og horfa heildstætt á knattspyrnuna í Keflavík frá yngsta stigi að því efsta. Í starfinu viljum við búa til góða knattspyrnumenn og ekki síður góða einstaklinga sem þroskast hjá félaginu sem einstaklingar og ekki síður sem félagsmenn. “

Sigurður Ragnar Eyjólfsson er spenntur fyrir framhaldinu og stefnir meðal annars á að efla faglegt starf innan félagsins.

“ Keflavík er eitt af stóru félögunum í knattspyrnu á Íslandi og ég er mjög spenntur fyrir því að taka við þessu starfi og aðstoða Keflavík við að ná sínum markmiðum.

Umgjörðin í kringum félagið er mjög góð og ég mun vinna í að finna leiðir til að gera gott starf enn betra, fá fólk í lið með mér til að efla faglegt starf félagsins og vinna að því að þjálfun og þróun leikmanna verði ennþá betri.

Ég er sannfærður um að við getum tekið félagið á næsta stig. Við viljum vera með öflug lið og leikmenn og festa okkur í sessi sem félag í efstu deild.

Hjá Keflavík er mikið af öflugu og hæfu fólki og ég hlakka mikið til að vinna með því ”

Sigurður lék við góðan orðstír knattspyrnu bæði hér heima og erlendis auk þess sem hann þjálfaði A-landslið kvenna frá 2007 til 2013 og komst liðið í tvígang í úrslitakeppni Evrópumótsins undir hans stjórn. Hann var þjálfari karlaliðs ÍBV, aðstoðarþjálfari hjá norska liðinu Lilleström í úrvaldeild karla í Noregi, gerði kínverska kvennaliðið Jiangsu Suning að bikarmeisturum í Kína og var síðan þjálfari A-landsliðs kvenna hjá Kína þar sem hann vann bronsverðlaun í Asíukeppninni og kom liðinu í lokakeppni HM. Hann er með UEFA PRO þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu. Siggi Raggi er íþróttafræðingur að mennt og hefur lokið við mastersgráðu í íþróttasálfræði frá University of North Carolina at Greensboro.