Nýjast á Local Suðurnes

Segir lögreglu ekkert aðhafst í bílþjófnaðarmáli þrátt fyrir að upplýsingar liggi fyrir

Auglýst hefur verið eftir Volvo bifreið sem var stolið frá Toyota-umboðinu í Reykjanesbæ í ýmsum Facebookhópum undanfarið, en svo virðist sem bíllinn hafi verið tekinn ófrjálsri hendi fyrir um þremur vikum síðan, samkvæmt auglýsingunni.

Fram kemur í auglýsingunni að upplýsingar um hinn meinta bílþjóf liggi fyrir þar sem viðkomandi hafi fengið bifreiðina til reynsluaksturs en ekki skilað henni og því skilið eftir upplýsingar, en að Lögregla hafi þrátt fyrir það ekkert gert til að hafa upp á bifreiðinni og meintum þjófi.

Þá er fólk beðið um að hafa augun opin og hafa samband í síma 420-6600 verði menn varir við bifreiðina í umferðinni. Númerið á bílnum er LU 892.