Opinn íbúafundur um skipulagstillögur

Opinn íbúafundur verður haldinn í Bíósal Duushúsa þann 9. júlí kl. 17:00-19:00. Farið verður yfir deiliskipulagsmál og kynning verður á tillögu um Keflavíkurtún – verndarsvæði í byggð. Á fundinum gefst íbúum kostur á að láta rödd sína heyrast og koma með tillögur um framtíðarásýnd gamla bæjarins og annarra svæða.
Dagskrá:
Deiliskipulagstillaga vegna Hlíðahverfis
Nýtt hverfi með 408 íbúðum. Athugasemdafrestur framlengdur til 16. júlí.
Dalshverfi II og III – deiliskipulag
Nýtt hverfi með 300 íbúðum og breyting á skipulagsmörkum.
Breyting á deiliskipulagi Hafnargötu 12
Íbúðum er fækkað úr 58 í 40, heimilt verður að hluti bílastæða verði ofanjarðar en innan lóðar.
Hreinsistöð við Ægisgötu – nýtt deiliskipulag
Hreinsistöð við Ægisgötu. Nýtt kennileiti og útsýnisstaður.
Kynning á tillögu varðandi Keflavíkurtún – verndarsvæði í byggð.
Fylgiskjöl og nánari upplýsingar:
> Dalshverfi
> Hlíðarhverfi – nýtt deiliskipulag
>Hlíðarhverfi – deiliskipulagsuppdráttur
> Hlíðarhverfi – deiliskipulagsuppdráttur, útskýringar
> Hlíðarhverfi – breyting á deiliskipulagi
> Hafnargata 12 – breyting á deiliskipulagi


















