Nýjast á Local Suðurnes

Olís gefur Grindvíkingum inneign

Olís hefur ákveðið að gefa hverju heimili á Grindavíkursvæðinu 10.000 kr. inneign hjá Olís og ÓB. Inneignina er hægt að nota í eldsneyti eða aðrar vörur hjá fyrirtækinu, segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins.

Fyrir þá sem það kjósa er einnig hægt að láta inneign heimilisins renna til Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar sem hefur sannarlega staðið í ströngu í tengslum við jarðhræringarnar undanfarið, segir einnig.

Sett hefur verið upp einfalt form á heimasíðunni, olis.is, sem hvert heimili getur fyllt út til að óska eftir inneignarkorti eða veita styrk til Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.