Nýjast á Local Suðurnes

Ólafur hættir sem lögreglustjóri – Grímur tekur við

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun láta af störfum um næstu mánaðamót, en hann mun taka við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu frá sama tíma. 

Grímur Hergeirsson mun verða tímabundið settur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum frá 1. september til 1. nóvember og Margrét Kristín Pálsdóttir lögfræðingur mun gegna stöðu aðstoðarlögreglustjóra embættisins á sama tímabili. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.