Nýjast á Local Suðurnes

Ódýrari hleðsla á rafbíla fyrir Grindvíkinga

Hleðsluaðstaða fyrir rafbíla hefur verið sett við Hotel Volcano í Grindavík (gamla Festi) og er öllum með lögheimili í Grindavík að hlaða rafbílinn sinn með 20% afslætti.

Bæjarbúar geta því fyllt t.d. 50 kWst rafbílinn sinn fyrir aðeins 1.060 kr. frá tómu batteríi, segir í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar.

Það er Hleðsluvaktin sem á og rekur stöðvarnar, en um er að ræða grindvískt og ört vaxandi fyrirtæki á Íslandi með hleðslustöðvar fyrir heimili og sumarhús auk hleðslulausna fyrir fjölbýli og fyrirtæki. Hleðslustöðvarnar frá Hleðsluvaktinni hafa unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna, t.d. þýsku iF Design Award 2021 fyrir hönnun og kerfisstjórn.

Fyrir frekari upplýsingar má skoða www.hledsluvaktin.is, hringja í 513 1900, spjalla á Facebook @hledsluvaktin eða senda tölvupóst á info@hledsluvaktin.is