Oddný er nýr formaður Samfylkingarinnar

Oddný Harðardóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar og hlaut hún 59 prósent atkvæða, þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Samfylkingarinnar. Oddný sagðist meðal annar vera klár í slaginn og að nú væri tími fyrir Samfylkingarfólk að bretta upp ermar.
„Brettum upp ermar kæru félagar, það er ekki eftir að neinu að bíða. Hrindum í framkvæmd 130 daga áætlun fyrir kosningar. Við erum til í slaginn!“, sagði Oddný.