Nýjast á Local Suðurnes

Milljarðarnir streyma í vasa hluthafa HS Orku – Greiða 1,4 milljarða í arð

Mynd: HS Orka

Stjórn HS Orku hefur ákveðið að greiða 10 milljónir dala, eða sem nemur um 1,4 milljörðum króna, til hluthafa félagsins með því að lækka hlutafé félagsins. Þetta var ákveðið á hluthafafundi félagsins sem fór fram 1. september síðastliðinn. Greint er frá þessu á vef Viðskiptablaðsins.

HS Orka hagnaðist um nærri 1,9 milljarða króna í fyrra eftir að hafa hagnast um hátt í milljarð árið áður. Í desember í fyrra greindi Viðskiptablaðið frá því að félagið hafi greitt 3,6 milljarða króna til hluthafa með lækkun hlutafjár. Þá greiddi félagið hluthöfum 5,6 milljarða króna með kaupum á eigin bréfum árið 2020. Því hefur HS Orku samtals greitt út 10,6 milljarða króna til hluthafa sinna frá árinu 2020.

HS Orka er til helminga í eigu lífeyrissjóða og sjóða í stýingu Ancala Partners LLP.