Nýjast á Local Suðurnes

Meirihlutinn vill hætt verði við kísilver – Minnihlutinn vill að Stakksberg og Thorsil haldi áfram

Verksmiðja Stakksbergs í Helguvík

Full­trú­ar meirihluta ásamt fulltrúa Miðflokksins í bæjartjórn Reykjanesbæjar skora á Ari­on banka og Thorsil að taka þátt í  ann­arri at­vinnu­upp­bygg­ingu í Helguvík en rekstur kísilvera. Fulltrúar Minnihlutans í bæjarstjórn taka ekki undir áskorunina en leggja áherslu á að það verði enginn afsláttur gefinn af umhverfiskröfum og eftirliti með uppbyggingu og atvinnustarfsemi í Helguvík.

Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar í gær, en á fundinum sammþykkti bæjarstjórn, fyrir sitt leyti, að Stakksberg ehf., rekstraraðili kísilvers United Silicon, hefji vinnu við skipulags- og matslýsingu og deiliskipulagsbreytingu í samræmi við beiðni þeirra þar að lútandi.

Eftirfarandi bókanir voru lagðar fram á fundinum:

„Á 217. fundi Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar sem haldinn var þann 12. október sl. var tekið fyrir erindi frá Verkís ehf. fyrir hönd Stakksbergs ehf. Í erindinu var óskað eftir því að skipulags- og matslýsing yrði tekin til meðferðar samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt var óskað eftir heimild til að vinna deiliskipulagsbreytingu í samræmi við skipulags- og matslýsingu samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laganna. Erindinu var hafnað á fundinum.

Málið var tekið á dagskrá á 552. fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 16. október sl.
Á fundinum var ákveðið að fresta málinu á meðan aflað var upplýsinga um stöðu skipulagsmála í Helguvík.
Bæjarstjórn hefur nú samþykkt að Stakksberg ehf. hefji vinnu við skipulags- og matslýsingu og deiliskipulagsbreytingu. Er það gert á grundvelli lögfræðilegrar ráðgjafar sem aflað hefur verið þar sem lagt er til að þessi heimild sé veitt.

Það skal hins vegar ítrekað að sveitarstjórn fer með skipulagsvaldið í sveitarfélaginu og áskilur sér allan rétt til þess að hafna deiliskipulagstillögum þegar að málsmeðferð skv. lögum er lokið.“

Til máls tók Margrét Ólöf A. Sanders sem lagði fram eftirfarandi bókun D – listans:

„Saga kísilvers United Silicon frá því það hóf starfsemi sína 2016 og þá tíu mánuði sem það starfaði er okkur öllum kunn og ljóst er að þau mistök sem gerð voru í undirbúningi og rekstri verksmiðjunnar mega ekki endurtaka sig. Íbúar í Reykjanesbæ þekkja mikilvægi þess að hafa fjölbreytt atvinnulíf. Rúmlega þúsund manns misstu atvinnuna við brotthvarf Varnarliðsins fyrir 12 árum. Í bankahruni tveimur árum síðar misstu enn fleiri atvinnuna, og nú síðast fyrir tveimur mánuðum var á þriðja hundruð manns sagt upp störfum á Keflavíkurflugvelli vegna óvissu í flugrekstri. Bæjarfulltrúar D-listans geta því ekki tekið undir áskorun meirihluta bæjarstjórnar um að Stakksberg og Thorsil falli frá áformum sínum um uppbyggingu kísilmálverksmiðja í Helguvík.

D-listinn leggur, eftir sem áður, áherslu á að það verði enginn afsláttur gefinn af umhverfiskröfum og eftirliti með uppbyggingu og atvinnustarfsemi í Helguvík. Bæjarfulltrúar D-listans skora á þessi sömu fyrirtæki að eiga ríkara samráð við íbúa um framvindu mála og tryggja að unnið verði að uppbyggingu í Helguvík sem er í sátt við íbúa og umhverfi Reykjanesbæjar.“

Til máls tók Gunnar Þórarinsson sem lagði fram eftirfarandi bókun:

„Varðandi starfsleyfi Kísilsvers Stakksbergs í Helguvík vill Frjálst afl að krafist verði notkunar á bestu fáanlegu mengunarvörnum sem til eru í dag. Íbúar Reykjanesbæjar fundu fyrir mengun og munu finna áfram ef ekki verður vandað til verka, þar sem kísilver Stakksbergs er mjög nálægt byggð. Búnaðurinn þarf að fyrirbyggja bæði lyktarmengun og aðra mengun sem getur skaðað íbúana.

Ljóst er að kolefnisspor verksmiðjunnar er verulegt og því eðlilegt að að til komi mótvægisaðgerðir. Þær gætu t.d. verið fólgnar í plöntun trjágróðurs í miklu magni á þeim svæðum bæjarins sem hafa verið skipulögð sem skógarsvæði. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar þarf að gera bæði Umhverfis- og Skipulagsstofnun grein fyrir þessum kröfum sem og þeirra sem koma að rekstri kísilversins.“

Til máls tók Guðbrandur Einarsson sem lagði fram eftirfarandi bókun:

„Kísilveri United Silicon, sem hóf starfsemi sína þann 13. nóvember 2016 var lokað 1. september 2017 og tekið til gjaldþrotaskipta 22. janúar 2018. Þann tíma sem verksmiðjan var í rekstri olli hún íbúum sveitarfélagsins verulegum óþægindum og jafnvel veikindum, vegna mengunar sem af henni stafaði. Þá urðu margir fyrir verulegum fjárhagslegum skakkaföllum í kjölfar gjaldþrots verksmiðjunnar, s.s. starfsmenn, verktakar, hluthafar og sveitarfélagið Reykjanesbær.

Nú hafa verið kynntar áætlanir um að hefja rekstur verksmiðjunnar að nýju og ætlar nýr eigandi, Arion Banki, að eyða verulegum fjármunum í lagfæringar á verksmiðjunni. Þá áformar hlutafélagið Thorsil einnig að hefja rekstur samskonar verksmiðju á sama stað í Helguvík, um 2 km frá þéttri byggð, steinsnar frá leikskóla og grunnskóla í bænum.

Ljóst er að íbúar Reykjanesbæjar hafa af þessu verulegar áhyggjur í ljósi fyrri reynslu af slíkum rekstri. United Silicon hafði einungis komið einum ofni í gang þann tíma sem fyrirtækið starfaði en áætlanir gera ráð fyrir að ofnarnir geti alls orðið sjö með tilheyrandi mengun.

Undirritaðir bæjarfulltrúar taka fyllilega undir áhyggjur annarra íbúa og telja að nú sé orðið ljóst að starfsemi af þessu tagi henti alls ekki í nálægð við þétta íbúabyggð.
Sökum þess viljum við skora á hlutaðeigandi aðila, bæði Arion banka og Thorsil að falla frá öllum áformum um uppbyggingu og rekstur kísilmálmverksmiðja í Helguvík og hvetja þá til að taka frekar þátt í annarri atvinnuuppbyggingu í sátt við fólkið í sveitarfélaginu og umhverfið.“

Undir bókunina skrifa Guðbrandur Einarsson, Friðjón Einarsson, Díana Hilmarsdóttir, Styrmir Gauti Fjeldsted, Jóhann Friðrik Friðriksson, Eydís Henze Pétursdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.