Nýjast á Local Suðurnes

Lífshættulegar aðstæður gætu skapast nái hraun til sjávar

Ef hraun næði til sjávar gætu lífshættulegar aðstæður skapast í nágrenni við það svæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum, en þar segir jafnframt að ólíklegt sé að þessi sviðsmynd komi upp, sé miðað við hraða á hraunflæði. Hér fyrir neðan má sjá kort sem sýnir það áhrifasvæði ef til þess kæmi.

Sú sviðsmynd og viðbragðsáætlanir henni tengdri hafa verið ræddar á stöðufundum Veðurstofunnar og Almannavarna í gær og í dag, segir einnig í tilkynningunni og að ég horft sé til þróunar í virkni gossins í dag, er það talið ólíklegt að hraun nái til sjávar. Miðað við hraðan á framrás hraunjaðarsins nú síðdegis (12 m/klst.), tæki það um tvo daga.

Á meðan að eldgos heldur áfram er engu að síður mikilvægt að vera undirbúin fyrir þessa sviðsmynd þar sem þær aðstæður sem þá gætu myndast eru lífshættulegar þeim sem eru innan áhrifasvæðisins.

Þetta kemur fram á vef Vedurstofunnar: https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardhraeringar-grindavik