Nýjast á Local Suðurnes

Kynbundinn launamunur hjá Grindavíkurbæ skýrist helst af arfleið fortíðar

Í framkvæmdaáætlun Jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar er kveðið á um að unnin sé jafnlaunaúttekt hjá Grindavíkurbæ annað hvert ár. Slík könnun fór fram í fyrsta skipti vegna ársins 2015 og voru niðurstöður lagðar fyrir bæjarstjórn í vor. Könnunin er unnin í samstarfi við PwC og byggir á stöðluðum vinnubrögðum félagsins. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að draga úr óútskýrðum launamun, m.a. með breytingum á akstursgreiðslum og yfirvinnu.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem sveitarfélgið sendi frá sér vegna umfjöllunar um niðurstöður könnunar á kynbundnum launamun meðal félagsmanna BHM, sem mælist 11,7%. Í fréttaflutningi er vísað til þess að önnur sveitarfélög en Reykjavíkurborg séu ekki að standa sig. Grindavíkurbær telur þá fullyrðingu ekki eiga við um starfsemi sína.

Helstu niðurstöður könnunarinnar eru á þá leið að óútskýrður launamunur er nú aðeins 0,8% af grunnlaunum, en 4,7% af heildarlaunum. Grindavík er í 3. sæti af 49 hvað varðar grunnlaun, en 13. sæti hvað varðar heildarlaun.

Telja má sennilegt að munurinn sem enn stendur eftir skýrist helst af arfleið fortíðar, gömlum samningum sem smám saman hverfa úr kerfinu með nýjum og breyttum áherslum í launamálum kynjanna. Það er stefna Grindavíkurbæjar að útrýma launamun kynjanna, enda réttlætismál að greidd séu sömu laun fyrir sömu vinnu og hæfni.

Samkvæmt framkvæmdaáætlun Jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar fer næsta könnun fram 2017.