Kanna möguleika á að bjóða 18 mánaða börnum leikskólavist
Fræðsluráð Reykjanebæjar hefur falið leikskólafulltrúa að framkvæma úttekt á stöðu allra leikskóla í sveitarfélaginu varðandi möguleika á að bjóða 18 mánaða börnum leikskólavist.
Skal úttektin fjalla um stöðu á húsnæði og lóð leikskólanna auk möguleika á þeirri stækkun sem þarf til þess að geta boðið upp á þjónustuna. Þá mun leikskólafulltrúinn einnig kanna mat skólastjóra allra leikskólanna á getu þeirra eða vilja til þess að bjóða 18 mánaða börnum leikskólavist með tilliti til starfsmannahalds og faglegs leikskólastarfs.