Hlynur stýrir Myllubakkaskóla

Hlynur Jónsson hefur verið ráðinn skólastjóri Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, en hann hefur verið starfandi skólastjóri frá árinu 2021.
Hlynur hefur starfað í stjórnendateymi Myllubakkaskóla við góðan orðstír frá árinu 2017. Hann lauk BSc gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, diplómagráðu í kennslufræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2011 og MA gráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskólanum á Bifröst árið 2015.