Vilja gjaldfrjálsan aðgang að Duus safnahúsum

Hagsmunaaðilar í Duus safnahúsum, menningarfulltrúi, Listasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar hafa lagt til að frá og með 1. janúar 2026 verði aðgangseyrir felldur niður í Duus safnahúsum og aðgangur að þeim hafður gjaldfrjáls.
Markmiðið er að gera safnahúsin aðgengilegri og fjölga gestum. Að fella niður aðgangseyri eykur aðgengi íbúa að húsunum og stuðlar að jafnræði og inngildingu allra hópa. Ýmis rök eru fyrir þessari breytingu sem væri íbúum sveitarfélagsins til hagsbóta.
Menningar- og þjónusturáð tók vel í erindið á fundi sínum og vísaði því áfram í fjárhagsáætlanagerð 2026.