Heita vatnið lyktar – Hér eru ástæðurnar!

Lykt af heitu vatni hefur verið töluvert til umræðu í hinum ýmsu íbúahópum á samfélagsmiðlum undanfarna daga og nú hafa HS Veitur séð ástæðu til að senda frá sér tilkynningu hvar ástæður þessa eru útskýrðar.
Tilkynning fyrirtækisins í heild:
Lykt af heitu vatni á Suðurnesjum
Undanfarið hafa viðskiptavinir víðs vegar á Suðurnesjum tekið eftir aukinni lykt af heitu vatni. Skýringin er tilfallandi og tengist miklu álagi á hitaveitunni upp á síðkastið.
Vegna kuldakafla hefur notkun á heitu vatni aukist verulega sem hefur skapað meira álag á framleiðslu HS Orku í Svartsengi. Til að mæta þessari auknu eftirspurn var tímabundið bætt við litlu magni af jarðhitagufu í framleiðsluna. Það getur valdið því að sumir finni lykt af vatninu.
Slíkar breytingar í framleiðslunni geta lækkað pH-gildið örlítið en hafa engin önnur áhrif á gæði vatnsins
Nú hefur álagið minnkað og samkvæmt upplýsingum frá HS Orku er ekki verið að nota jarðhitagufu í framleiðslunni um þessar mundir. Stefnt er að því að halda þessari notkun jarðhitagufu í lágmarki en íbúar geta þó fundið fyrir svipuðu á löngum kuldaköflum líkt og þeim sem verið hafa undanfarið 🌬️
HS Veitur og HS Orka þakka viðskiptavinum fyrir skilninginn.



















