Gríðarlega erfið færð á Suðurnesjum – Benda fólki á fólksbílum á að vera ekki á ferðinni
Mynd: Lögreglan á SuðurnesjumGríðarlega erfið færð er á Suðurnesjum í dag, en öll snjóruðningstæki sem mögulegt var að ná í eru á ferðinni. Lögreglan á Suðurnesjum hvetur þannig þá sem eru á minni fólksbílum að vera ekki á ferðinni.



















