Nýjast á Local Suðurnes

Fræsa Njarðarbraut á miðvikudag – Búast má við umferðartöfum

Það má búast við töfum á umferð á Njarðarbraut, á morgun, miðvikudaginn 26. apríl, en þá stendur til að fræsa malbikið milli gatnamótanna við Grænásbraut og að hraðahindruninni við gömlu steypustöðina. Einhverjar turflanir verða á umferð og biður Reykjanesbær ökumenn um að hafa umburðarlyndið í farteskinu á meðan á framkvæmdum stendur.

Gula línan sýnir staðsetningu framkvæmdar við fræsingu vegar.