Nýjast á Local Suðurnes

Frá Njarðvík til Molde

Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur komist að samkomulagi við Molde Fotballklubb um sölu á Kristóferi Snæ.

Kristófer sem er ungur og efnilegur sóknarmaður, fæddur árið 2006 gekk til liðs við Njarðvík fyrir tímabilið og lék alls 9 meistaraflokks leiki með félaginu ásamt því að leika fyrir 2.flokk.
5 leikjanna komu í sumar. 3 í Lengjudeildinni og 2 þeirra í Mjólkurbikarnum.
Áður hafði Kristófer spilað 4 leiki í Lengjubikarnum í vetur.

Nú mun Kristófer freista gæfunnar í Noregi hjá ríkjandi Noregsmeisturum Molde, og vill Knattspyrnudeildin nýta tækifærið og óska honum góðs gengis á nýjum slóðum! Segir í tilkynningu frá félaginu.