Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða upp á leigu matjurtagarða

Íbúum Suðurnesjabæjar gefst kostur á að leigja matjurtagarða af sveitarfélaginu og rækta eigið grænmeti, en um er að ræða um það bil 15 fermetra matjurtagarða, sem hver og einn hefur til umráða. Garðarnir eru staðsettir við enda Sjávargötu.

Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins kemur fram að leigverð á garðinum sé 3.500 krónur og að umsóknarfrestur sé til og með 15. apríl. Nánari upplýsingar um hvernig sótt er um má finna hér.

Í tilkynningunni segir jafnframt að matjurtagarðar séu aftur farnir að njóta vinsælda, enda geti íbúar ræktað hollt og gott grænmeti fyrir sig og sína og um leið notið útiveru í dásamlegu umhverfi.