Á þriðja tug sitja í gæsluvarðhaldi – Gríðarlegt álag á lögreglu

Álag á starfsemi lögreglunnar á Suðurnesjum er mikið um þessar mundir, en alls sitja 25 manns í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Flestir vegna innflutnings á ólöglegum fíkniefnum.
Þessir gæsluvarðhaldsfangar eiga ríkisfang í eftirtöldum löndum: Palestínu, Sýrlandi, Spáni, Gíneu, Litháen, Nígeríu, Brasilíu, Spáni, Grikklandi, Alsír, Póllandi, Þýskalandi, Slóvakíu, Frakklandi og Lettlandi, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Þá segir í tilkynningunni að Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli sé öflug í sinni greiningarvinnu og hafi á að skipa færum tollvörðum. Í samstarfi lögreglu og tollgæslu er árangur í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi eftirtektarverður.
Frávísanir á landamærum snúa ekki að þeim sem handteknir eru á flugvellinum við það að reyna að koma inn í landið ólöglegum fíkniefnum. Þeir eru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald og í framhaldi af því dæmdir til fangelsisvistar.
Í minnisblaði, dags. 13. mars 2024, sem sent var dómsmálaráðuneytinu var þeirri tillögu komið á framfæri við ráðuneytið að ráðnir verði til embættisins fangaverðir til að annast fangavörslu í fangahúsi, yfirsetu yfir sakborningum sem flytja inn fíkniefni innvortis og flutning sakborninga til og frá dómi. Í dag sinna lögreglumenn þessum verkefnum.
Vert er að geta þess að það getur tekið daga, og vikur í undantekningartilfellum, að skila af sér fíkniefnum úr meltingarvegi á meðan sakborningur er vistaður í fangaklefa á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum þarf að geta nýtt lögreglumenn í löggæsluverkefni en ekki í fangavörslu og fangaflutninga. Lausn er ekki í sjónmáli.