Nýjast á Local Suðurnes

Sveitarstjórnarmenn kynntu sér starfsemina í Eldey

Sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum kynntu sér starfsemina í Eldey frumkvöðlasetri á Ásbrú síðastliðinn föstudag en aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fór fram um helgina.

Í Eldey var tekið á móti gestunum með veitingum og kynntu fyrirtæki starfsemi sína. Í Eldey er meða annars að finna fyrirtæki í heilsugeiranum, fatahönnuði, ljósahönnuði, vöruhönnuði og hugbúnaðarsérfræðinga svo eitthvað sé nefnt.