Nýjast á Local Suðurnes

Zuzanna Korpak kylfingur ársins hjá GS

Kylfingur ársins 2015 hjá Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingurinn ungi Zuzanna Korpak. Hún sýndi miklar framfarir á árinu, endaði í 3. sæti stigalista GSÍ í sínum flokki og varð Íslandsmeistari í holukeppni GSÍ.

zuzanna korpak golf gs

 

Zuzanna tók þátt í landsliðsverkefnum á árinu og hefur sýnt að hún er afrekskylfingur framtíðarinnar. Zuzanna hefur sýnt fram á mikla elju og dugnað við sína golfiðkun, sýnt fádæma góðan árangur síðustu árin og er vel að þessum titli komin, segir á heimasíðu GS.