sudurnes.net
Zuzanna Korpak kylfingur ársins hjá GS - Local Sudurnes
Kylfingur ársins 2015 hjá Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingurinn ungi Zuzanna Korpak. Hún sýndi miklar framfarir á árinu, endaði í 3. sæti stigalista GSÍ í sínum flokki og varð Íslandsmeistari í holukeppni GSÍ. Zuzanna tók þátt í landsliðsverkefnum á árinu og hefur sýnt að hún er afrekskylfingur framtíðarinnar. Zuzanna hefur sýnt fram á mikla elju og dugnað við sína golfiðkun, sýnt fádæma góðan árangur síðustu árin og er vel að þessum titli komin, segir á heimasíðu GS. Meira frá SuðurnesjumSveit GS endaði í 6. sæti í sveitakeppni öldungaKorpak systur á verðlaunapall á Íslandsmeistaramóti í holukeppniSigrar hjá Keflavík og Njarðvík – Grindavík tapaðiNjarðvíkursigur í Ásgarði – Mögnuð endurkoma Tyson-ThomasDaníel Leó valinn í U21 landsliðiðÚlfur Blandon tekur við Þrótti VogumEl Sjeiks sigruðu á vel heppnuðu fyrirtækjamóti í blaki – Myndir!Mikilvægir leikir hjá Suðurnesjaliðunum í boltanum um helginaGuðmundur fékk bronsmerki GlímusambandsinsFrá Njarðvík til Molde