Spennandi úrslitakeppni framundan – Keflavík fær deildarmeistarana
Eftir leiki kvöldsins í Dominos-deildinni í körfuknattleik, þar sem Njarðvík sigraði Hött, Grindavík lagði Þór frá Akureyri og Keflavík tapaði naumlega fyrir ÍR, er ljóst hvaða lið það eru sem mætast í átta liða úrslitum keppninnar.
Úrslitakeppnin hefst þann15. mars næstkomandi, en nánari leikjaröðun liggur ekki enn fyrir.
Viðureignir 8. liða úrslitanna eru eftirfarandi:
Haukar (1) – Keflavík (8)
ÍR (2) – Stjarnan (7)
Tindastóll (3) – Grindavík (6)
KR (4) – Njarðvík (5)