Nýjast á Local Suðurnes

Robinson sagt upp – Vilja betur þenkjandi leikmann

Mynd: KKD. UMFN

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur sagt upp samningi við Gerald Robinson og mun hann því ekki koma til með að leika meira með liði UMFN.  Ákvörðun um að láta Robinson fara er að mestu leyti taktísk þar sem að þörfin fyrir betur þenkjandi leikmann í stöðu miðherja er mikil.

Robinson stóð sig prýðilega með liði UMFN og í tilkynningu er honum þakkað framlagið og óskað alls hins besta í sínum verkefnum.