Nýjast á Local Suðurnes

Íþróttakarl og íþróttakona Reykjanesbæjar útnefnd á gamlársdag

Íþróttafólk UMFN 2016 - Mynd: UMFN

Íþróttakarl og íþróttakona Reykjanesbæjar verða útnefnd í hófi, sem haldið verður í Íþróttamiðstöðinni í Njarðvík þann 31. desember næstkomandi klukkan 13.00.

Auk þess sem íþróttakarl og íþróttakona verða heiðruð mun Íþróttabandalag Reykjanesbæjar heiðra 164 aðra íþróttamenn aðildarfélaga ÍRB sem urðu íslandsmeistarar á árinu.