Nýjast á Local Suðurnes

Guðmundur og Heiður klúbbmeistarar 2015

Heiður sigraði í meistaraflokki kvenna með talsverðum yfirburðum, eða 11 höggum. Í karlaflokki var spenna fram á lokaholu, en Guðmundur Rúnar varði titilinn eftir mikla baráttu við Sigurð Jónsson sem endaði höggi á eftir sigurvegaranum. Fyrir tíu árum síðan urðu þau tvö klúbbmeistarar GS – þá bæði í fyrsta sinn.

Vel heppnað meistaramót

Alls tóku 110 manns þátt í meistaramótinu þetta árið, að auki var haldið “mini-meistaramót” á Jóel fyrir yngstu GS-ingana. Veðrið var með besta móti alla keppnisdagana og Leiran í toppformi, segir á heimasíðu GS.