Nýjast á Local Suðurnes

Grannaslagur í Inkasso-deildinni – Keflvíkingar skelltu í myndband!

Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum á heimavelli sínum annað kvöld. Um sannkallaðan toppslag er að ræða, en þrjú stig skilja liðin að í 2. og 3. sæti Inkasso-deildarinnar, Grindvíkingar hafa 28 stig á meðan Keflvíkingar hafa 25.

Leikmenn beggja liða hafa verið á skotskónum í sumar, Grindvíkingar hafa skorað mest allra liða í deildarkeppnum það sem af er sumri, ef undan er talin fjórða deild, eða 36 mörk í 14 leikjum, Keflvíkingar hafa skorað næst mest allra liða í Inkasso-deildinni það sem af er keppninni eða 24 mörk.

Bæði lið stefna að því að leika í Pepsí-deildinni að ári og er því um afar þýðingarmikinn leik að ræða og ljóst að allt verður lagt í sölurnar í Grindavík annað kvöld.

Keflvíkingar skelltu í flott myndband í tilefni af leiknum, en það má sjá hér fyrir neðan.