Nýjast á Local Suðurnes

Ástrós Norðurlandameistari í taekwondo í 5. skipti

Ástrós Brynjarsdóttir varð Norðurlandameistari í taekwondo í fimmta skipti um helgina. Ástrós keppti í tveimur erfiðum flokkum og uppskar gull í tækni, en það var mjög stór sigur fyrir hana. Hún fékk einnig bronsverðlaun í bardaga – Hún var svo valin bardagakona mótsins.

Ágætis hópur Íslendinga fór á mótið en hun var eini Keflvíkingurinn sem fór að þessu sinni. Ástæðan var sú að það var alþjóða taekwondo mót í Reykjavík á sama tíma þar sem stór hluti Keflvíkinga fór á, segir á Facebook-síðu Íþrótta og tómstundaráðs Reykjanesbæjar.

Ástrós er að skrá sig í sögubækurnar en hún er þriðji Íslendingurinn frá upphafi sem nær fimm Norðurlandatitlum og sú eina sem nær því fyrir 18 ára aldur.